22.5.2007 | 19:27
Hús foreldra minna
Það er oftast allt brjálað þar, enda flestir sem búa þar snargeðveikir.
Mæðgur á efstu hæð sem kunna ekki að keyra, hvað þá leggja, og hika ekki við að leggja fyrir framan bílskúr foreldra minna. Jafnvel leggja þær fyrir AFTAN bíl þeirra ef honum er lagt fyrir utan bílskúrinn. Og þá kemst maður hvergi.
Fyrir nokkru þurfti ég að leita í öllum nærliggjandi húsum þegar einhver lokaði bílinn sem ég var á á milli bílskúrs og bíls. Kallinn var þá brjálaður, gestur í næsta húsi, og þetta endaði í öskrum og ljótum orðum.
Hversu tregt getur fólk eiginlega verið? Ójá, best að leggja þannig að þessi bíll KOMIST EKKI Í BURTU. ÞAÐ er sniðugt.
Næst þegar ég lendi í einhverju svona hringi ég í Vöku á núinu. Ekki spurning.
Ég vildi óska þess að heimurinn myndi deyja. Það myndi leysa svo margt.
![]() |
Kastaði af sér þvagi í stigahúsi vegna ósættis við nágranna sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.