Pæling

Sumarið er tíminn. Mótorhjólamenn taka hjólin úr bílskúrunum og fara að rúnta. Sumir rúnta hraðar en aðrir, því miður. Eins rúnta sumir ökumenn bifreiða hraðar en aðrir ökumenn.

Svo kemur biturt og tregt fólk og segir "OMFG ALLIR BIKERAR ERU DÓPISTAR OG KEYRA OF HRAT SHITT MAR DREPUM ÞÁ!!!!".
Sú staðreynd að það er meira fjallað um ofsaakstur bifhjóla nú heldur en fyrir.. segjum 2 mánuðum, er það að nú er sumar. Það eru hundrað sinnum fleiri hjól núna en undanfarna mánuði. Þetta segir sig sjálft. Ef það bætist við í sauðahópinn eru alveg líkur á því að það bætist við í svarta sauðahópinn í leiðinni.
Ökumenn bíla brjóta jafnt af sér, ég er viss um að hlutfallið sé svipað (ef ekki hærra hjá bílstjórum), ekki segir fólk "Omg bílstjórar eru allir dópistar, best að banna þá í hverfinu!"

 Þá er ég búin að koma þessu frá mér. Tek það fram að ég hef aldrei komið við mótorhjól, hvað þá stjórnað slíku.

 

Naglabretti.
Hvernig er aftur auglýsingin? Ökumaður bíls á 90kmph sem er ekki í belti er með fallþungann X-tonn, sem er eins og 2 afríkufílar? Eitthvað þannig. Hvað ætli ökumaður bifhjóls á 150kmph sé þá margir fílar? Hvað ætli hálsinn og hryggurinn á honum gæti endað í mörgum pörtum ef hann þeytist af svona bretti? Löggan getur alveg eins komið fyrir sprengjum á veginum, nú eða setið í vegkanntinum með riffil og beðið eftir að hjólið þeysist framhjá.
Kannski þeir vilji drepa konuna og börnin í leiðinni? Skreppa bara heim til þeirra í leiðinni. Mótorhjólamenn eru jú auðvitað óþverralýður, dópistar og morðingjar. Best að klára þetta bara allt í einu.

 

Ég keyri nú frekar mikið um á toyotunni minni. Ég hef aldrei nokkurntíman sagt "Oh helvítis mótorhjól, að svína svona á mig!!"
En ég má telja mig heppna ef ég kemst heim ósködduð eftir að ökumenn fólksbíla og jeppa fatta ekki að biðskylda þýðir að þeir eigi að bííííða.

 


mbl.is Lögreglan fái búnað til að stöðva hraðakstur bifhjóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Datt in hér af mbl.is

vel orðað hja þer :)

Tító (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 10:36

2 identicon

Hinn flöturinn. Ætli þeir sem stundi geðveikisakstur og stunda það að stinga lögregluna af muni ekki hugsa sig tvisvar um og hætta við ef þeir viti að mögulega verði settur gaddur á götuna sem sprengi dekkin?

 Ef ekki, þá eru það geðsjúklingar sem eiga skilið hvað svo sem kemur fyrir þá kjósi þeir að halda áfram. Hvað ef þeir eru ekki stöðvaðir og aka niður t.d. lítið barn og drepa það?

Þá kýs ég frekar gaddana með tilheyrandi áhættu fyrir geðsjúklinginn.

Bikerinn (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 11:22

3 Smámynd: Arfi

En hjólið er ekkert að fara að stoppa við gaddana. Eða ég stórefast um það. Hvað er að það er hjólið, eitt og sér fljúgandi eftir að hafa lent á göddunum, sem drepur barnið?

Dauðadómar tíðkast ekki á Íslandi. Ef þjóðin vill endilega taka þá upp, þá er örugglega til betri aðferð en gaddabelti. Sprautan virkar víst vel.

Arfi, 20.6.2007 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband